Sími 441 9860

Fréttir

Lokað tímabundið í Örva frá og með mánudegi 9. mars

8.3.2020

Lokun vegna Covid-19 veirunnar
Tilkynning af heimasíðu Kópavogsbæjar:

,,Kópavogsbær hefur tekið ákvörðun um lokun á starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna COVID-19 veirunnar og er ákvörðun um lokun starfsstöðva tekin með hliðsjón af þeirri breytingu." 

Örvi er einn þessara starfsstöðva og hefur öllum hlutaðeigandi verið tilkynnt um lokunina.

Lesa má tilkynningu Kópavogsbæjar í heild hér: Lokanir til að vernda viðkvæma hópa





Þetta vefsvæði byggir á Eplica