Sími 441 9860

Um Örva

Um Örva

Örvi hóf starfsemi sína árið 1984 og hefur verið í núverandi húsnæði að Kársnesbraut 110, Kópavogi frá árinu 1987.

Um 30 þjónustunotendur með skerta starfsgetu geta verið í starfshæfingu, starfsþjálfun eða iðju hverju sinni. Aðeins er boðið upp á viðveru hálfan daginn, annað hvort fyrir eða eftir hádegi.

Starfsmenn eru 6 talsins; forstöðumaður, verkstjórar, starfsráðgjafi og fulltrúi á skrifstofu. 

Starfsemi Örva er tvíþætt. Annars vegar fer fram þjálfun og styrking einstaklinga með skerta starfsgetu sem hefur það að markmiði að gera viðkomandi hæfari til starfa á almennum vinnumarkaði. Hins vegar er Örvi fyrirtæki í umtalsverðum rekstri. Framleiðsla plastumbúða og ýmis önnur verkefni fyrir viðskiptavini (pökkun, flokkun og samsetningar) er grundvöllurinn sem starfsþjálfunin hvílir á.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica