Fréttir
Nýr forstöðumaður í Örva
Nýr forstöðumaður hóf störf í dag, 1. júní
Í dag tók Birgitta Bóasdóttir við starfi forstöðumanns Örva. Hún er þroskaþjálfi að mennt og síðustu ár hefur hún gegnt stöðu deildarstjóra sérkennslu á leikskólanum Bakkaborg samhliða starfi á sambýlinu Sigurhæð.
Birgitta þekkir vel til Örva því á námsárum sínum vann hún hér við sumarafleysingar.
Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum við hana hjartanlega velkomna til starfa!